fjárlög 2013.
Frú forseti. Mér finnst skynsamlegt að nýta arð af eigum ríkisins til að greiða niður skuldir, og það er verið að því, og til að fjárfesta, þá skynsamlega til að efla atvinnugreinar og innviði í samfélaginu sem geta síðan hjálpað okkur við að skapa meiri arð í framtíðinni. Það er sú sóknarstefna sem meðal annars þeir liðir sem við erum að greiða atkvæði um núna grundvallast á. Ég styð það eindregið og mér finnst merkilegt hvað þessi einfalda hugsun, að það sé réttlætanlegt að nota arð af eigum ríkisins til fjárfestinga, virðist vera ný í augum margra þingmanna. Ég held að hér sé um að ræða nokkuð klassíska aðferðafræði og ég held að við séum mjög aftarlega á merinni þegar kemur að ýmsum fjárfestingum á Íslandi. (Forseti hringir.) Hér er verið að gera bragarbót á því.