141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[12:28]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Í þessum fjárlagaliðum sjáum við dæmi um það þegar menn horfast ekki í augu við raunveruleikann sem og dæmi um það hvernig reynt er að sópa vandanum undir teppið. Ég ætla sérstaklega að víkja að skólamálunum. Það var sýnt fram á þetta varðandi Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands og Hólaskóla. Það er ekki í neinu getið um Hvanneyri í þessum breytingartillögum.

Ég ætla að taka dæmi af Hólaskóla. Sá skóli fær samkvæmt fjárlagafrumvarpinu 264 millj. kr. Það er óumdeilt að til að hann geti haldið úti þeirri starfsemi sem hann sinnir núna þarf 25% hærri fjárveitingu, 65 millj. kr. Þess sér ekki stað í þessum breytingartillögum. Það kemur breytingartillaga upp á 1,2 millj. kr. Að óbreyttu þýðir þetta að Hólaskóli getur starfað fram í september.

Staðan er líka alvarleg í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Menn neita hins vegar greinilega að horfast í augu við þetta og láta sem ekkert sé. Hv. þm. Lúðvík Geirsson sagði að þetta væru einhvers konar sóknarfjárlög. Það er alveg rétt, þetta er sókn gegn þessum skólum.