141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[12:46]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Við greiðum atkvæði um Ferðasjóð Íþróttasambands Íslands sem við vitum að er mjög mikilvægur. Ég vil líka vekja athygli á því að ferðakostnaður og ferðir íþróttafélaga fara í báðar áttir, bæði til höfuðborgarsvæðisins og líka frá höfuðborginni út á land. Í þessum kreppufjárlögum, á þeim erfiðu tímum sem nú eru, er verið að auka framlag um hvorki meira né minna en tæplega 40% við þennan lið. Ég veit það vel að það hefur mjög mikið að segja hvað varðar ferðir íþróttafélaga á landinu, sama hvort farið er út á land eða utan af landi til höfuðborgarsvæðisins þannig að ég fagna því sérstaklega að það skuli gert.