fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Ég fagna því auðvitað að hér skuli vera veitt aukið fjármagn til tækjakaupa á Landspítalann. En það kom fram í ræðu minni áðan að samkvæmt upplýsingum frá forstjóra spítalans þarf 2–3 milljarða á næstu tveimur árum bara í bráðapakka sem er nauðsynlegur til að halda uppi viðunandi þjónustu á spítalanum. (Gripið fram í.) Þegar þessi forgangsröðun er borin saman við gæluverkefnin sem hv. þm. Kristján Möller var að vitna til segi ég að grænn fjárfestingarsjóður upp á 500 milljónir, græna hagkerfið og grænkun fyrirtækja upp á 280 milljónir, græn skref og vistvæn innkaup upp á 150 milljónir og grænar fjárfestingar upp á 50 milljónir (Gripið fram í.) séu gæluverkefni sem ríkisstjórnin, sem vill kenna sig við velferð, tekur fram yfir bráðaþörf Landspítalans fyrir ný tæki til að geta haldið uppi grunnheilbrigðisþjónustu í landinu. Þetta kalla ég gæluverkefni. (Forseti hringir.) Á þeirri forgangsröðun (Forseti hringir.) hef ég engan skilning frekar en aðrir í okkar þjóðfélagi. [Frammíköll í þingsal.]
(Forseti (ÁRJ): Forseti biður um hljóð í þingsalnum.)