141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[13:53]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég er komin hingað til að vekja athygli á lið 118 þar sem lögð er til hækkun lífeyrisskuldbindinga, eftirlauna um milljarð á þessu ári. Talið er að það verði jafnvel þörf fyrir hækkun á næsta ári líka. Hér er ekki verið að taka til baka lagasetninguna frá 1. júlí 2009 þar sem skerðingarhlutföllin komu svo heiftarlega inn í bæði almannatryggingar og lífeyrissjóðina — það má segja að skerðingin hafi verið króna á móti krónu — heldur er verið að uppfæra hækkanir sem rekja má til áhrifa kjarasamninga opinberra starfsmanna.

Ríkisstjórnin hefur haft tækifæri til að lagfæra þessa skattskekkju sem var lögð á 1. júlí 2009. Það er enginn vilji til að koma til móts við eldri borgara frekar en hjúkrunarfræðinga sem nú standa í kjarabaráttu. Hér koma þingmenn Samfylkingarinnar og telja að hér sé allt fortíðinni að kenna en ég minni á að Samfylkingin er búin að sitja í ríkisstjórn (Forseti hringir.) í fimm ár og sjálfur hæstv. forsætisráðherra hefur haft þessa hópa undir sínum verndarvæng.