141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[14:04]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil undir þessum lið 130 og í tengslum við lið 129 minna á að hér á suðvesturhorninu er sveitarfélag sem heitir Kjósarhreppur sem óskað hefur eftir stuðningi af hálfu ríkisins til að leggja hitaveitu á sitt svæði til að vera ekki lengur eitt af hinum köldu svæðum. Það erindi kom fyrir fjárlaganefnd og var kallað eftir fjárstyrk sem fjárlaganefnd hefur enn þá ekki orðið við. Ég hvet hv. fjárlaganefnd og meiri hlutann þar til að skoða vandlega hvort ekki sé ástæða til að styðja við Kjósarhrepp í tengslum við ýmis orkumál og hreppurinn geti orðið hluti af hitaveitusvæði suðvesturhornsins og horfið frá því að vera kalt svæði. Ég skora á hv. meiri hluta í fjárlaganefnd sem ræður nú för sem og framkvæmdarvaldið sem þar getur komið að að gera hið sama fyrir Kjósarhrepp (Forseti hringir.) og gert var fyrir Skagaströnd og Blönduós hér forðum.