ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Herra forseti. Mér sýnist sú vegferð vera farin af stað með þeim frumvörpum sem eru til umræðu. Við höfum rætt fjárlagafrumvarpið ítarlega. Í atkvæðagreiðslunni í dag komu stjórnarliðar loksins og sögðu eitt og annað sem hefði gjarnan mátt koma fram í umræðunni, en hvað um það. Mér sýnist nefnilega fjárlögin ekki standast því á bak við þau er svo veikur tekjugrunnur. Það mun aldrei ganga að ná þeim tekjum sem menn ætla sér. Hér erum við svo með tekjufrumvörpin. Ef við horfum til dæmis á skatt á ferðaþjónustu og annað í greininni þá tel ég að hann muni skila minni tekjum í ríkissjóð. Tóbaksgjaldið mun væntanlega leiða til þess að menn kaupa minna af tóbaki, sem er í sjálfu sér jákvætt en skilar minni tekjum í ríkissjóð. Hækkun á bensíngjaldi og olíugjaldi mun á endanum leiða til að menn aka enn minna en áður sem mun líka skila minni tekjum í ríkissjóð. Eins og það lítur út er þetta feigðarför sem er farin hér.
2009 voru sett lög sem bera nafnið Lög um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009. Það áttu að vera tímabundin lög sem voru meðal annars skattur á raforku og heitt vatn. Það er svokallaður sturtuskattur sem er ágætisnafn því það kostaði okkur extra mikið að fara í bað og sturtu þar sem ríkið tók prósentu af dropanum sem við notum til að baða okkur með.
Ég spyr hv. þingmann: Þegar tímabundnir skattar eins og lagðir voru á 2009 eru festir í sessi, eins og á að gera með þessu frumvarpi, er þá í rauninni einhver von til þess, ef það verður svipað stjórnarfyrirkomulag áfram, sem við að sjálfsögðu vonum flest að verði ekki, að staðið verði við eitthvað af þeim álögum sem sagðar eru tímabundnar, eins og t.d. með raforkuskattinn á stóriðjuna sem á að renna út eftir þrjú ár? Er ekki alveg viðbúið að hann verði framlengdur út í (Forseti hringir.) hið óendanlega eins og annað?