ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka þetta svar. Ekki er nóg með það, heldur er búið að flækja skattkerfið svo mikið til hliðar við virðisaukaskattskerfið — ég man þá tíð þegar hér var tekið upp staðgreiðslukerfi og íslenska ríkið gaf eftir heilt ár af skatttekjum til að hægt væri að taka það kerfi upp. Það kerfi virkaði mjög vel því þá vissi fólk nákvæmlega hvað það ætti til ráðstöfunar um hver mánaðamót. En um leið og þessi ríkisstjórn tók við þá var skattkerfið flækt svo mikið að segja má að við séum komin aftur á byrjunarreit með eftirágreitt skattkerfi, sem er mjög mikil afturför. Þegar við erum komin af stað með þannig kerfi aftur þá aukast skattsvik, skattaundanskot, svört atvinnustarfsemi og annað, svo við tölum ekki um þegar fjármagnstekjur eru orðnar svo háar að fólk telur sig ekki einu sinni geta átt pening í banka vegna þess að þar eru neikvæðir vextir. Það má segja að allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skattamálum hafi mistekist. Ég man ekki í augnablikinu eftir neinu sem hefur verið jákvætt við þær.
Ég veit að það er mjög skammur tími til að spyrja á tveimur mínútum og sérstaklega svara. Þess vegna langar mig til að bera spurninguna upp aftur. Þegar hugmyndirnar komu fram um að ferðaþjónustan ætti að fara að borga 25,5% í virðisaukaskatt eins og aðrar atvinnugreinar því ríkisstjórnin taldi að sú atvinnugrein væri orðin það burðug að hún mætti við meiri skatttekjum, þá voru rök starfandi fjármálaráðherra hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur þau að 7% virðisaukaskattur í ferðaþjónustuna væri raunverulegur ríkisstyrkur til atvinnugreinarinnar. Þess vegna spyr ég þingmanninn, vegna þess að hann hafði ekki tíma til að svara í andsvarinu: Er ekki 14% virðisaukaskatturinn, eins og lagður er til í þessu frumvarpi, álíka mikill ríkisstyrkur eins og 7%?