141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

468. mál
[18:56]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, þetta er mjög mikið áhyggjuefni og maður getur ekki annað en velt fyrir sér hvernig hægt sé að komast að svona rangri niðurstöðu því að það virðist svo augljóst að þetta sé ekki hagkvæmt, augljóslega ekki fyrir greinina en ekki heldur fyrir samfélagið eða ríkið. En því miður er þetta í samræmi við annað sem við höfum séð frá þessari ríkisstjórn.

Lítum til dæmis á umræðuna um sjávarútveginn. Það sem kom í ljós hvað eftir annað í umræðum hér í þinginu í máli hv. stjórnarliða var að þeir vissu ekkert hvað þeir voru að tala um, þeir vissu ekki hvað hugtakið framlegð þýðir, eins mikið og þeir notuðu það til þess að réttlæta að sjávarútvegurinn hefði miklu meira en nóg aflögu.

Menn bjuggu til nýtt orð og fóru að tala um umframhagnað. Það hljómar eins og eitthvað sem er meira en menn eiga skilið og sé þar af leiðandi hægt að taka af þeim án þess að hafa af því verulegar áhyggjur. En svo þegar farið var að kanna hvað þetta þýddi, þetta orð umframhagnaður, þá var það ekki meira en venjulegur hagnaður, nei, það var minna. Það var sem sagt það sem fyrirtækin höfðu áður en þau fóru að borga vaxtagjöld eða af afborgunum eða nauðsynlegt viðhald, áður en þau fóru í ýmsa nauðsynlega fjárfestingu, það var umframhagnaður.

Því miður birtist þetta sama hugarfar í því hvernig ríkisstjórnin tekur á ferðaþjónustunni. Menn virðast bara ekki átta sig á því hver staða greinarinnar er eða að menn þurfa að hafa eitthvað aflögu til að borga af lánum, hvað þá að fara að fjárfesta í frekari uppbyggingu eða að gera reksturinn hagkvæmari, ég tala nú ekki um að greiða fólkinu hærri laun því að laun í ferðaþjónustu hafa því miður ekki verið sérstaklega há. Eins og ég kom aðeins inn á áðan eru þetta oft á tíðum fjölskyldufyrirtæki þar sem fólk reiknar sér lítil laun á meðan verið er að byggja fyrirtækin upp. En menn líta bara fram hjá þessu og fara fram með þessum hætti og er það stórskaðlegt fyrir greinina og samfélagið allt í leiðinni.