141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

468. mál
[19:52]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Herra forseti. Jú, það er svo. Við horfum upp á það ítrekað í öllum alþjóðlegum samanburði við önnur ríki að einmitt þetta sem hv. þingmaður talaði um kemur skýrt fram. Ég tek undir með hv. þingmanni um hversu mikilvægt það er að við bætum þessa umgjörð.

Í þessari sömu skýrslu og ég vitnaði til áðan kemur fram að af átta efstu áhættuatriðum sem einkenna fjárfestingar á Íslandi eru fimm þeirra hæð skattanna, pólitískur óstöðugleiki, málefnalegur óstöðugleiki, óskilvirkt embættismannakerfi og síðan skattareglurnar sjálfar. Allt eru þetta atriði sem er verið að krukka í núna í þessu frumvarpi. Ferðamannaskatturinn og orkuskatturinn, sem hv. þingmaður kom inn á, eru góð dæmi um það. Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hún fór mjög vel yfir þessa tvo þætti í sinni ræðu: Hver eru brýnustu verkefni stjórnvalda núna?

Nú liggur fyrir að þessi ríkisstjórn á einungis örfáa mánuði eftir og það liggur fyrir að mikið verk er fyrir höndum þegar við erum komin niður fyrir Haítí á lista yfir áhrif skattkerfis á atvinnuuppbyggingu. Hver eru fyrstu verkefnin sem við þurfum að ráðast í hér á nýju kjörtímabili? Því það verður að bregðast mjög hratt við því atvinnulífið í landinu sem er undirstaðan undir öllu hér, hagvöxturinn sem er undirstaðan undir því að við getum greitt af okkar erlendu lánum sem er undirstaðan undir því að við getum veitt fjármuni inn í heilbrigðiskerfið og svo framvegis.

Hver eru brýnustu þrjú atriðin, eitt til tvö, þrjú atriðin, sem hv. þingmaður telur að verði að ráðast í strax á nýju kjörtímabili?