ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég get verið sammála hv. þingmanni um að óvissa og það að koma í veg fyrir að fólk og fyrirtæki geti gert áætlanir er mjög skaðlegt. Það erum við að sjá til dæmis núna í ferðaþjónustunni. Ef hæstv. ríkisstjórn hefði komið fram og sagt: Núna er kominn tími til þess að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu, það hafa aukist umsvif og þetta er orðið tímabært. Við gerum okkur hins vegar grein fyrir því að ferðaþjónustan er þannig grein sem gerir áætlanir til tveggja ára. Þess vegna ætlum við að setja þessa hækkun á eftir tvö ár.
Þannig er þetta gert annars staðar. Það var aðili í ferðaþjónustunni sem sagði mér frá þýskum ferðaheildsala sem hann átti samninga við. Þegar hann sagði honum af þessari hækkun þá krossaði Þjóðverjinn sig í bak og fyrir og sagðist hafa verið að leggja til 0,1% hækkun á sinni vöru til viðskiptavina sinna með sex mánaða eða árs fyrirvara, og það þótti bara dálítið róttækt.
Hérna kemur ríkisstjórn Íslands og hækkar virðisaukaskattinn úr 7% í 25,5% án þess að blikna og það á að taka gildi 1. janúar. Af góðmennsku sinni færir hún það til 1. mars. Auðvitað er þessi óvissa mjög skaðleg. Þannig að ég tek undir það.
Hv. þingmaður talaði líka um fyrirheitin, það er rétt hjá honum að við vorum öll tilbúin til að leggja á okkur. Ef stefnan hefði verið sett: Við þurfum aðeins að fara í gegnum skaflinn, þetta verður erfitt en við höfum fyrirheit um að það sé ljós við enda ganganna. Þá voru skilaboðin frá íslenska fjármálaráðherranum hins vegar öðruvísi og nú ætla ég, (Forseti hringir.) þó að íslenskan sé vissulega þingmálið, að fá að bregða fyrir mig enskri tungu. Þá sagði íslenski fjármálaráðherrann: „You ain't seen nothing yet.“