141. löggjafarþing — 48. fundur,  6. des. 2012.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

468. mál
[20:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrst þetta: Það er með ólíkindum að sitja undir því hér endalaust aftur á bak og áfram að menn sitji ekki við umræðuna eða fylgist með henni eða taki þátt í henni ef þeir eru ráðherrar eða formenn eða í forustu fyrir nefndina sem um ræðir. Staðreyndin er þessi: Þessi umræða er búin að standa yfir þó nokkuð lengi. Það eru ekki margir liðir í þessu frumvarpi, margir þingmenn hafa farið yfir þá og meira og minna öll sú gagnrýni sem fram hefur komið er endurtekin hér. Hv. formaður nefndarinnar hefur stigið ellefu sinnum í ræðustól í þessari umræðu. Sú sem hér stendur hefur gert það að minnsta kosti níu eða tíu sinnum og sömuleiðis varaformaður nefndarinnar. Það er ekki hægt að halda því fram að menn taki ekki þátt í þessari umræðu.

Virðulegi forseti. Ég vil hins vegar spyrja hv. þingmann sem á frumvarp í þinginu um lækkun á húshitunarkostnaði, en hann spyr mig líka hvort sólarlagsákvæðið eigi að standa varðandi raforkuskattinn. Okkar tillaga er sú að ákvæðið verði eingöngu til þriggja ára, að það verði framlengt með sömu rökum og þegar það var sett á. Skilyrði útflutningsgreinanna sem kostnaðurinn leggst nokkuð þungt á eru það hagstæð, þau voru hagstæð þá og eru hagstæð núna þegar tekið er tillit til stöðu krónunnar og þeirrar staðreyndar að við þurfum að brúa mikið og stórt gat hjá ríkissjóði. Hv. þingmaður er hins vegar með tillögu fyrir þinginu um að 10 aura raforkuskattur verði settur á til að fjármagna niðurgreiðslur á húshitunarkostnaði. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður sé til í að svara mér því hvað sé þarna á ferðinni, hvort það sé nákvæmlega sami skattur og ríkisstjórnin hefur lagt á með 12 aurum eða eitthvað annað sem hann vilji beintengja við hann og þá geti hann farið yfir það með okkur hér (Forseti hringir.) hvað felist í 10 aura tillögu hans sem er öðruvísi en 12 aura tillaga okkar.