ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegur forseti. Nú liggur fyrir skýrt svar um að það er sólarlagsákvæði í raforkuskattinum sem ríkisstjórnin hefur lagt á. Þá vitum við það og þá vitum við líka að það er einhver misskilningur í gangi í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar þar sem kveðið er á um að ætlunin sé að sá skattur sem hæstv. ráðherra segir okkur að hugmyndin sé að renni út eftir þrjú ár eigi að renna til þess að greiða niður húshitunarkostnað.
Ég ætla ekki að fara í nákvæmnisatriðum út í það sem frumvarp mitt gengur út á að öðru leyti en því að það byggir í smáatriðum algjörlega á tillögum nefndar sem hæstv. fjármálaráðherra, þá hæstv. iðnaðarnefndar, skipaði. Ég fagnaði þeirri skipan á sínum tíma. Skipanin var í samræmi við þingsályktunartillögu sem ég hafði reyndar flutt ásamt mörgum öðrum þingmönnum. Ég er því eindreginn talsmaður þeirrar leiðar sem þar er farin. Ég trúi því þá að vilji sé til þess að framkvæma hana.
Ég spurði hins vegar hæstv. ráðherra nokkurra annarra spurninga sem voru málefnalegar. Það var í fyrsta lagi hvort ætlunin væri að taka þannig á varðandi losunarheimildirnar að endurgreiðsla vegna kolefnisgjaldsins yrði fyrir árið 2012 í ljósi þess að við gengum inn í þetta kerfi með innanlandsflugið í ársbyrjun 2012. Ég vil einfaldlega spyrja eftir því hvort þetta hafi verið íhugað og ef það hefur ekki verið íhugað vil ég gjarnan að það verði gert í nefndinni.
Í öðru lagi kom ég með mál sem ég tel að skipti miklu máli. Það er örugglega ekkert mjög stórt fyrir ríkissjóð en gríðarlega mikilvægt fyrir einstaklinga og réttlætismál sem lýtur að hagsmunum þeirra sem hafa minni eignir og minni tekjur, ungs fólks. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji ekki og vilji mögulega beita sér fyrir því að þessu máli verði ýtt áfram vegna þess að það skiptir miklu máli.
Ég geri ekki ráð fyrir að hæstv. ráðherra hafi tíma til að fara í umræðu um þjóðkirkjuna en hana tel ég vera eitt af þeim (Forseti hringir.) stóru málum sem mér finnst vera gagnrýnisvert hvernig ríkisstjórnin hefur komið fram í.