ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég vakti athygli á því fyrr í dag að rekstrarafkoma í gistiþjónustu á landsbyggðinni virtist vera betri en á höfuðborgarsvæðinu, af einhverjum ástæðum sem hafa ekki verið skýrðar út fyrir mér. Engu að síður er ég sannfærður um að áhrifin af hækkun virðisaukaskattsins verða mjög mikil á fyrirtækin á landsbyggðinni.
Hvers vegna? Jú, vegna þess að langflest þessara fyrirtækja hafa mjög takmarkaðan tíma til að selja út gistiþjónustu sína. Það hefur verið viðvarandi vandamál í ferðaþjónustu hér, eins og reyndar í mjög mörgum öðrum löndum, hversu skammur tíminn er sem þessi fyrirtæki nýta fjárfestingu sína. Þetta á alveg sérstaklega við á landsbyggðinni. Síðan er það sjálfstætt áhyggjuefni að þó að ferðamönnum sem koma hingað utan háannatíma hafi fjölgað mikið upp á síðkastið, sem er í sjálfu sér mjög jákvætt, fara þeir í miklu minna mæli út á landsbyggðina.
Það er auðvitað skiljanlegt. Þeir koma hingað í stuttan tíma yfir vetrartímann þegar aðstæður oft á tíðum ekki allt of góðar til að fara mjög langt frá höfuðborgarsvæðinu. Það mun síðan ýta undir þetta misræmi ef niðurstaðan verður sú að vörugjöld verða hækkuð á bílaleigubílum vegna þess að fyrstu áhrifin eru þau, eins og bílaleigurnar benda á, að menn reyna að draga úr því að þurfa að endurnýja bílaflotann sinn og reyna þá að búa til hvata í verðinu til þess að draga úr akstrinum.
Hvernig búa menn til þann hvata? Jú, þeir setja inn kílómetragjald sem menn hafa verið að hverfa frá. Það verður þess valdandi að ferðamennirnir hætta að ferðast út fyrir höfuðborgarsvæðið, fara fremur í styttri ferðir. Það mun því enn draga úr. Þegar allt þetta kúplast saman, áhrifin af vörugjöldunum og áhrifin af virðisaukaskattshækkun, held ég að áhrifin á ferðaþjónustuna á landsbyggðina verði þeim mun verri, því miður, og þeim mun alvarlegri, (Forseti hringir.) ekki síst í ljósi þess að þetta er einn af þeim vaxtarbroddum sem menn hafa horft til á landsbyggðinni.