búnaðarlög og framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á búnaðarlögum svo og lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, sem er á þskj. 652, það er 448. mál.
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á ákvæðum búnaðarlaga, einkum er varða leiðbeiningarþjónustu í landbúnaði. Samkvæmt búnaðarlögum veitir ríkið árlega framlög til verkefna á sviði leiðbeiningarstarfsemi. Markmið þeirrar þjónustu er að miðla upplýsingum til bænda og stuðla að bættum búskaparháttum og framförum í búskap, til hagsbóta og bættra lífskjara fyrir bændur og neytendur búvara.
Bændasamtök Íslands hafa á hendi hina faglegu og fjárhagslegu umsjón með starfseminni og annast um framkvæmdina. Til að mæta breyttum aðstæðum og efla og bæta þessa þjónustu og hagræða í rekstri hafa Bændasamtökin lagt til að leiðbeiningarþjónustan í landbúnaði verði sameinuð á landsvísu. Með frumvarpinu er lagt til að Bændasamtökunum verði veitt nauðsynlegt svigrúm í búnaðarlögum til að skipuleggja leiðbeiningarþjónustuna í samræmi við fram komnar tillögur. Þar af leiðandi verður ekki lengur kveðið á um það í lögum að þjónustan skuli veitt á þeim svæðisbundna grundvelli sem verið hefur. Að sjálfsögðu mun leiðbeiningarþjónustan áfram verða veitt í öllum landshlutum og öllum bændum landsins verður tryggð ráðgjöf, en þetta er niðurstaðan af löngu ferli innan Bændasamtakanna og er það að ósk þeirra sjálfra sem þessar breytingar eru nú í burðarliðnum.
Í september síðastliðnum voru undirritaðar breytingar á samningum um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu, sauðfjárræktar og framleiðenda garðyrkjuafurða, svokallaðir búvörusamningar, og fólu þeir samningar í sér í aðalatriðum framlengingu þeirra í tvö ár. Samningarnir eru framlengdir miðað við núverandi fjárhæðir samkvæmt fjárlögum og taka viss ákvæði í eldri samningum frá árinu 2009 þar af leiðandi ekki gildi. Framlög vegna samninganna voru lækkuð um 1%, eins og innbyggt var í þá, en hækka síðan um sömu prósentutölu og verðlagsforsendur fjárlaga gera milli áranna 2012 og 2013 og eftirleiðis. Breytingarnar fela í sér ákveðna eftirgjöf af hálfu bænda frá fullum framlögum eins og þau hefðu orðið á grundvelli samninganna frá 2009 en á móti er bændum tryggður aukinn stöðugleiki í starfsemi sinni með framlengingu samninganna auk þess sem nokkur önnur ákvæði þeirra taka breytingum.
Með frumvarpi þessu er þar af leiðandi lagt til að gerðar verði viðeigandi breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum í ljósi þessara breytinga. Rétt er að taka fram að í haust var sömuleiðis framlengdur svokallaður búnaðarlagasamningur og komu þar nokkrar hækkanir inn á tiltekna liði, einkum framlög til kornræktar og meira fé til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Í heildina tekið held ég að vel hafi til tekist að ná fram heildarsamkomulagi þar sem hvorutveggja var endurnýjaður búnaðarlagasamningur og búvörusamningarnir framlengdir um tvö ár og hafa bændur þegar, að minnsta kosti í sumum búgreinum, samþykkt niðurstöðuna með yfirgnæfandi meiri hluta í atkvæðagreiðslu.
Þá er loks þess að geta að til þess að bregðast við afleiðingum óveðursins á Norðurlandi á haustmánuðum eru í frumvarpinu gerðar tilteknar breytingar á ákvæðum til bráðabirgða í lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Vegna óveðursins urðu fjölmargir bændur fyrir miklum fjárskaða eins og kunnugt er og verður sá skaði bættur í gegnum A-deild Bjargráðasjóðs. Sömuleiðis er hér lagt er til að heimilað verði að greiða beingreiðslur og álagsgreiðslur vegna gæðastýrðrar sauðfjárframleiðslu til þeirra bænda sem urðu fyrir fjárskaða vegna óveðursins með sama hætti og gert hefur verið til dæmis þegar framleiðsla bænda hefur raskast vegna náttúruhamfara. Er hér þar af leiðandi farin sambærileg leið og farin var varðandi þennan þátt málsins í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og þó einkum eldgossins í Grímsvötnum.
Þetta er meginefni frumvarpsins, frú forseti, og legg ég til að því verði vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar að lokinni þessari.