141. löggjafarþing — 49. fundur,  8. des. 2012.

Íslandsstofa.

500. mál
[12:29]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Íslandsstofu, nr. 38/2010. Tilgangurinn er að festa fjármögnun Íslandsstofu í sessi. Núverandi fyrirkomulag, þar sem markaðsgjaldið hefur verið einn helsti tekjustofn Íslandsstofu, rennur sitt skeið í lok þessa árs. Markaðsgjaldið var síðast framlengt vegna forvera Íslandsstofu, Útflutningsráðs, til fimm ára vorið 2007. Það tímabil fluttist síðan óbreytt yfir til Íslandsstofu við yfirtöku réttinda og skyldna Útflutningsráðsins árið 2010.

Með þessu frumvarpi er lagt til að núverandi fjármögnun Íslandsstofu með markaðsgjaldi verði ótímabundin og þar með verði fastur fjárhagslegur rammi settur til lengri tíma utan um starfsemina. Í greinargerð sem fylgir þessu frumvarpi er að finna nokkuð ítarlegt sögulegt yfirlit yfir það hvernig Útflutningsráð og síðar Íslandsstofa hafa verið fjármögnuð. Útflutningsráð Íslands var alla tíð sjálfstæð stofnun. Hún var fjármögnuð beint af atvinnulífinu nema að litlu leyti hin allra fyrstu ár.

Frá 1998 var Útflutningsráð fjármagnað að langmestu leyti með svokölluðu markaðsgjaldi sem lagðist á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds. Markaðsgjaldið er 0,05% af því og um bæði álagningu og innheimtu þess fer eftir ákvæðum laga um tryggingagjald. Þetta fyrirkomulag hefur haldist allar götur síðan og hefur reynst mjög vel. Eins og hv. þingmenn muna er alveg ljóst að þegar við fórum höndum um Íslandsstofu var niðurstaðan sú að löggjafinn ætlaði Íslandsstofu sömu stöðu innan stjórnkerfisins og Útflutningsráð hafði áður, meðal annars hvað varðar fjárhagslegt sjálfstæði með lögákveðnum gjaldstofni.

Eins og kemur vel fram í lögum sem að henni lúta er Íslandsstofa samstarfsverkefni á millum atvinnulífsins og stjórnvalda. Hún er þjónustuaðili við atvinnulífið og óhætt er að segja að almenn ánægja ríki innan atvinnulífsins með starfsemina. Bein þátttaka atvinnulífsins í fjármögnun starfseminnar og í stjórn Íslandsstofu eykur meðvitund um þátttöku hennar í mikilvægum verkefnum.

Ég vek eftirtekt hv. þingmanna á að frá því að Íslandsstofa var sett á stofn hefur hún tekið að sér mjög mikilvæg verkefni sem hún hefur unnið ákaflega vel. Hún hefur til dæmis séð um framkvæmd afar vel heppnaðra verkefna undanfarin missiri eins og Inspired by Iceland, margverðlaunað víðs vegar um heiminn. Sömuleiðis systurverkefnið Ísland allt árið sem hefur komið Íslandi á kortið í töluvert auknum mæli sem spennandi áfangastað fyrir vetrarferðamennsku. Allt hefur þetta skipt mjög miklu máli fyrir íslenskt efnahagslíf.

Fyrirkomulag markaðsgjaldsins sem helsta tekjustofns Íslandsstofu hefur tryggt festu í rekstrinum og það hefur verið ákaflega góð sátt um gjaldið meðal viðkomandi aðila. Ég veit að við getum orðið sammála um að atvinnulífið þarf styrk, það þarf vissu og öryggi til að halda áfram að vaxa og dafna. Ég tel þess vegna best að festa markaðsgjaldið í sessi til að tryggja bæði gegnsæja og örugga fjármögnun Íslandsstofu til frambúðar. Ég held að þannig þjónum við okkar atvinnulífi best í gegnum þessa ágætu stofu.

Virðulegi forseti. Ég legg til að þegar umræðunni sleppir verði frumvarpinu vísað til 2. umr. og hv. utanríkismálanefndar.