141. löggjafarþing — 49. fundur,  8. des. 2012.

vegabréf.

479. mál
[13:04]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessar ábendingar eða vangaveltur öllu heldur. Eins og málin standa nú greiðir fólk fyrir vegabréf. Sú greiðsla rennur inn í ríkissjóð sem síðan rennur aftur til Þjóðskrár og þeirra aðila sem framleiða vegabréfin.

Þetta stenst ekki alls kostar á í bókhaldinu en ég lít svo á að byggja eigi á þeirri grundvallarreglu að sú greiðsla sem einstaklingarnir inna af hendi fari til þess að standa straum af gerð vegabréfsins. Þegar þessi líftími vegabréfanna verður lengdur muni það verða svo, þegar fram í sækir, að við ættum að geta dregið úr tilkostnaði einstaklinganna. Þetta á að koma báðum til góða, einstaklingunum sem eru að fá vegabréfin í hendur og sömu einstaklingum sem skattborgurum.