141. löggjafarþing — 49. fundur,  8. des. 2012.

vegabréf.

479. mál
[13:05]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar upplýsingar. Mér fannst það sláandi hvað íslenska ríkið þurfti að leggja mikið fé í vegabréfaútgáfuna þar sem innkaupin eru svo dýr eins og ég fór yfir áðan. Í fylgiskjali frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, fjárlagaskrifstofu þess, koma fram ýmsar vangaveltur um þróun þess til 2017. Við skulum sjá til. Við vonum að ríkissjóður fari ekki að seilast út í að ofverðleggja vegabréf eins og annað. Eins og ráðherrann veit er vegabréf sönnun þess hver maður er og hver einstaklingur er og ávísun á að geta ferðast um heiminn. Ég minni á að nauðsynlegt er að halda þessu í lágmarki.

Ég vona að með þessari breytingu finni ríkissjóður ekki smugu til að ofverðleggja vegabréf þannig að hagnaður verði af þeim. Þetta verður í það minnsta að rekast á núllinu að mínu mati. Það er jú tekið gjald fyrir útgáfu vegabréfsins sem er þá andvirði þess að fá vegabréf í hendurnar en ekki á að skattleggja þetta þannig að sumt af því fari í vegabréfaútgáfu og annað beint inn í ríkissjóð. Ég kem til með að vakta málið, hæstv. innanríkisráðherra.