141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

makríldeilan.

[13:37]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Ég fagnaði því áðan og fagna því enn að stjórnvöld skuli hafa leitað ráðgjafar í þessu máli. Við eigum að vera ófeimin við að leita til sérfræðinga þegar við þurfum að halda uppi vörnum eða koma réttum málstað á framfæri.

Það kann vel að vera að frú Damanaki sé að reyna að breiða yfir vandamál sem eru annars staðar í samskiptum, líklega samskiptum Norðmanna og Evrópusambandsins í þessu tilviki. Það breytir því hins vegar ekki hvort stjórnvöld eigi að mótmæla orðum ráðherrans formlega. Það er það sem ég er að vísa til, að sjálfsögðu eigum við að nýta þetta fyrirtæki sem er að vinna fyrir okkur, þessa ráðgjafa. Það kann vel að vera að ef þeir meta það þannig að ekki sé rétt að gera það eigi að hlusta á það, en fyrir fram hefði ég haldið að stjórnvöld ættu að senda frá sér yfirlýsingu og mótmæla harkalega þessum orðum Damanaki (Forseti hringir.) sem eru þá einfaldlega röng.