bætur til kartöflubænda í Þykkvabæ.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hlýleg orð um það hvernig staðið hefur verið að því að koma til móts við tjón bænda vegna óveðursins á Norðurlandi. Það var strax ákveðið að þetta væri fárviðri af því tagi, samanber líka að lýst var yfir almannavarnaástandi, sem má kannski búast við á hálfrar aldar fresti eða svo, að þetta væri jafngildi náttúruhamfara. Niðurstaðan varð þar af leiðandi að bæta tjónið í gegnum A-deild Bjargráðasjóðs sem gerir ríkinu kleift að leggja fjármuni beint inn í uppgjörið.
Varðandi það tjón sem hv. þingmaður nefnir vegna sumarfrosta á Suðurlandi 2009 varð það niðurstaða Bjargráðasjóðs og stjórnvalda á þeim tíma að það væru ekki atburðir af því tagi að þeir ættu erindi inn í A-deild, heldur ætti að greiða þær bætur með hefðbundnum hætti í gegnum deildaskipta B-deild sjóðsins. Þær bætur sem greiddar voru fóru úr þeim hluta Bjargráðasjóðs.
Það er alveg rétt að það voru takmarkaðar bætur. Þær hrukku skammt upp í það mikla tjón og uppskerubrest sem varð hjá fjölda bænda. Þetta mál hefur vaknað til lífsins aftur og það er nýkomið erindi inn í ráðuneytið þar sem minnt er á þetta mál sem við vorum að fjalla um síðast í gær. Ég ætla ekki að lofa neinu fyrir fram eða upp í ermina á mér en auðvitað má til sanns vegar færa að það sé talsverður munur á því hvernig tjón eru bætt eftir því hvernig þau eru flokkuð en þá verður að hafa í huga að ýmiss konar tjón verða í hinum ýmsu búgreinum og venjan er sú að þau eru bætt í B-deildinni með þeim tekjustofnum sem þar eru til staðar. Þá þarf sérstakar ráðstafanir til ef á að fara að taka upp þetta mál og setja það í einhvern annan farveg.
Ég vil ekki lofa neinu í þessum efnum fyrir fram en málið er nýkomið (Forseti hringir.) á nýjan leik til ráðuneytisins.