vernd og orkunýting landsvæða.
Hæstv. forseti. Nú stendur yfir á hinu háa Alþingi síðari umr. um vernd og orkunýtingu landsvæða, svokölluð rammaáætlun, sem er komin til umræðu og afgreiðslu á hinu háa Alþingi.
Áður en ég fer yfir þá fyrirvara sem ég hef sett fram með nefndaráliti atvinnuveganefndar vil ég fyrst segja, virðulegi forseti, að mjög merkileg og góð vinna hefur átt sér stað frá árinu 2007 þegar þáverandi hæstv. iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson og þáverandi hæstv. umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir hófu þá vinnu sem við erum með afrakstur af núna. Þá komu þessir tveir aðilar sér saman um að skipa Svanfríði Jónasdóttur, bæjarstjóra í Dalvíkurbyggð, sem formann verkefnisstjórnarinnar og síðan hefur þessi mikla vinna átt sér stað sem við segjum að sé öll fagleg og góð og hafi verið farið yfir. En við skulum líka gera okkur grein fyrir því að við vissum að aldrei yrðu allir sáttir við þá vinnu. Þetta verkefni er bara svo stórt að það var borin von að um það yrði fullkomin sátt.
Meiri sátt hefði þó verið hægt að hafa um þetta mál. Eins og fyrirvari minn, sem ég ætla að lesa upp á eftir, segir til um er það einfaldlega að mínu mati þannig að ef tillaga verkefnisstjórnarinnar hefði verið til umræðu og afgreiðslu leyfi ég mér að fullyrða að meiri sátt hefði verið um þetta mál en er í dag. Hin góða vinna verkefnisstjórnarinnar hófst, eins og ég sagði, með ákvörðun þessara tveggja ráðherra í tíð þeirrar ríkisstjórnar. Það sem gerðist þar á eftir þegar lög um rammaáætlun voru samþykkt samhljóða á Alþingi — í tíð þessarar ríkisstjórnar voru þessi lög sett — tókst góð samvinna í þáverandi iðnaðarnefnd og umhverfisnefnd um að búa til þann lagagrundvöll sem við vinnum eftir. Það var mjög mikilvægt skref en sýnir jafnframt, virðulegi forseti, að það er hægt að vinna sig til niðurstöðu og sáttar.
Þegar stór mál eru tekin fyrir fá einfaldlega ekki allir sitt og allir verða jafnvel að gefa eitthvað eftir. Það er það sem ég sakna í þeim breytingum sem gerðar voru í meðförum ráðherranna tveggja sem unnu svo þessa þingsályktunartillögu eftir að plaggið frá verkefnisstjórninni fór í svokallað umhverfismat áætlana. Þetta finnst mér miður vegna þess að ég bar þá von í brjósti, og geri enn, að á Alþingi gæti tekist meiri sátt meðal allra stjórnmálaflokka en hér er núna.
Sáttin átti að verða okkar leiðarljós. Við áttum að geta leyft okkur það að á Alþingi tækjumst við á í nefndarvinnu og annars staðar við að leiða þetta mál til meiri sáttar. Ég harma að það skuli ekki hafa verið gert, tel að það hafi ekki verið fullreynt og tel að það séu ýmsir agnúar á þeirri tillögu sem nú liggur fyrir.
Virðulegi forseti. Áður en ég held lengra langar mig að lesa upp þann fyrirvara sem ég setti við álit atvinnuveganefndar sem skilaði því til umhverfis- og samgöngunefndar eftir að umhverfis- og samgöngunefnd fékk málið til sín á þessu þingi. Það var sem sagt breytt frá því sem var á síðasta þingi þegar málið var á forræði atvinnuveganefndar. Með leyfi forseta ætla ég að lesa fyrirvara minn og ég vísa hér í sjálfan mig í 3. persónu:
„Kristján er samþykkur almennum atriðum sem fram koma í umsögn meiri hluta nefndarinnar,“ þ.e. atvinnuveganefndar. „Hann telur þó að það hefði verið meira í samræmi við upphaflegan tilgang rammaáætlunar ef tillagan hefði í aðalatriðum verið í samræmi við röðun verkefnisstjórnar og sérfræðingahóps í orkunýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk. Það hefði stuðlað að breiðari samstöðu á Alþingi og lagt grunn að því að unnt reyndist að vinna að orkunýtingu og verndun á skipulegan og markvissan hátt á næstu árum
Kristján hefur þó haft fullan skilning á því viðhorfi Oddnýjar G. Harðardóttur, þáverandi iðnaðarráðherra, og Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, sem ráðherrarnir komu á framfæri opinberlega í mars síðastliðnum, að virða bæri hið opna umsagnarferli sem hófst við framlagningu draga að þeirri þingsályktunartillögu sem atvinnuveganefnd hefur fjallað um. Fjöldi umsagnaraðila hefur lagt til breytingar á þingsályktunartillögunni, m.a. með þeim rökum að slíkt myndi tryggja breiðari sátt um hana á Alþingi og í þjóðfélaginu, en þar hefur verið talað fyrir daufum eyrum.
Honum þótti eðlilegt að teknu tilliti til nýrra upplýsinga um laxagengd í Þjórsá að skipa Urriðafossvirkjun í biðflokk en hefur efasemdir um að hið sama hefði átt að gilda um Hvammsvirkjun og Holtavirkjun. Hann telur í raun að þar hefði röðun verkefnisstjórnar í orkunýtingarflokk átt að standa óhögguð. Með því að taka ákvörðun um röðun í orkunýtingarflokk er ekki verið að ákveða að viðkomandi svæði verði virkjað þegar í stað. Heimild til virkjunar ræðst af fjölmörgum viðbótarþáttum, svo sem umhverfismati, skipulagsmálum, framkvæmda- og virkjunarleyfum sem fjalla þarf um af þar til bærum aðilum.
Kristján telur að í umsagnarferlinu hafi komið fram rök, sem borið hafi að virða, fyrir því að skipa Hagavatnsvirkjun í Farinu við Hagavatn og Hólmsárvirkjun neðri við Atley í orkunýtingarflokk.
Þá bendir Kristján á að orkuskrifstofa iðnaðarráðuneytisins gerði í janúar 2012 minnisblað um mögulega virkjunarkosti í vatnsafli sem hægt væri að færa úr biðflokki í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Niðurstaða orkuskrifstofunnar var sú að sterkust rök væru fyrir því að færa Hagavatnsvirkjun og þá Hólmsárvirkjun neðri við Atley úr biðflokki í orkunýtingarflokk.
Rökstyðja má með dæmi að umrætt umsagnarferli hafi ekki verið virt eins og skyldi. Með óyggjandi hætti var leitt í ljós að rökstuðningur fyrir því að skipa Hólmsárvirkjun neðri við Atley í biðflokk hafi byggst á mannlegum mistökum. Sýnt var fram á í umsagnarferlinu að þær ástæður, sem tilgreindar voru í drögum að þingsályktunartillögunni fyrir að skipa henni í biðflokk, voru einfaldlega ekki fyrir hendi. Mat faghópa var ekki byggt á nýjustu gögnum, engin óvissa ríkti um áhrif virkjunarinnar á skóglendi né hvar raflína ætti að liggja. Það vantaði engar upplýsingar eins og fullyrt var í drögunum.
Bygging Hólmsárvirkjunar er eingöngu ætluð til þess að mæta aukinni raforkuþörf fyrir almennan markað og er hún af heppilegri stærð ef virkja á fyrir almenning en ekki stóriðju. Af samkeppnisástæðum er einnig mikilvægt að Orkusalan (sem er í eigu Rariks)“ — sem var í eigu ríkisins — „þurfi ekki að kaupa meginhluta raforku sinnar af Landsvirkjun eða keppinautum á almennum markaði. Hér hefði mátt taka mið af fyrirsjáanlegum þörfum almenna raforkumarkaðarins til öflunar raforku og til samkeppnissjónarmiða í raforkusölu til almennings.
Fyrirliggjandi tillaga um röðun virkjunarkosta er afar rýr hvað vatnsafl snertir og eru nú aðeins tveir fremur smáir vatnsaflskostir eftir í orkunýtingarflokki. Þeir eru þess utan ekki í hópi hinna hagkvæmustu kosta. Því verður að telja að þingsályktunartillagan sé í sérkennilegu ójafnvægi gagnvart nýtingu vatnsafls sem þó er okkar varanlegasti og umhverfisvænsti orkugjafi í raforkumálum.
Kristján minnir á að orkuiðnaðurinn á Íslandi er mikilvæg og alþjóðlega samkeppnishæf atvinnugrein og samfelld þróun hennar skiptir miklu fyrir efnahagsmál þjóðarinnar og þar með þjóðarhag. Á þeim erfiðleikatímum, sem glímt er við á Íslandi í dag, er sjálfbær nýting orkuauðlinda landsins afgerandi þáttur í uppbyggingu atvinnulífs og til sköpunar nýrra og arðbærra atvinnutækifæra sem brýn þörf er á.
Kristján telur nauðsynlegt að halda ofangreindum sjónarmiðum til haga við afgreiðslu þingsályktunartillögunnar, enda hefði það verið fallið til breiðari sáttar milli nýtingar- og verndunarsjónarmiða ef þeim hefði verið gefinn meiri gaumur. Hann getur fallist á að þingsályktunartillagan hljóti afgreiðslu í trausti þess að rannsóknum á virkjunarkostum í biðflokki verði flýtt eins og kostur er, enda leggur meiri hluti nefndarinnar sérstaka áherslu á það sjónarmið í umsögn sinni. Eðlilegt er að því verði flýtt eins og kostur er að skera úr um hvort virkjunarkostir eigi að flokkast í orkunýtingarflokk eða verndarflokk til þess að hægt verði að vinna þessi mál í þokkalegum friði í stað rifrildis um einstaka virkjunarkosti.
Í lokin skal minnt á að með rammaáætlun mun nást fram verndun margra verðmætra náttúrusvæða á Íslandi. Það eru hin stóru tíðindi sem starf verkefnisstjórnar rammaáætlunar skilaði Íslendingum. Það er miður að orkan hefur farið í að þoka sem flestum vatnsaflsvirkjunum úr orkunýtingarflokki í biðflokk. Í stað þess hefði mátt að eyða orkunni í að skýra fyrir almenningi þá miklu verndun náttúrusvæða sem felst í rammaáætlun.“
Svo mörg voru þau orð, virðulegi forseti, sem ég set fram í fyrirvara mínum. Það er af mörgu að taka í þessu máli. Eitt af því sem ég vil ítreka kemur fram í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar þar sem fjallað er um kaflann um Hólmsárvirkjun. Þar kemur fram það sem ég hef verið að fjalla um gagnvart Hólmsárvirkjun við Atley, að þar sé til vistgerðarkort þar sem glöggt megi sjá þær landgerðir sem lentu í lónstæðinu og að þar sjáist að lónið hafi óveruleg áhrif á birkikjarr á stóru svæði. Þessar nýju rannsóknir voru allar fyrir hendi en eins og kom fram á sameiginlegum fundi umhverfis- og samgöngunefndar og atvinnuveganefndar, á sennilega síðasta fundinum, áttu sér einfaldlega stað mannleg mistök. Það hafði margsinnis komið fram hjá þeim sem sendu umsagnir og komu sem gestir til nefndanna varðandi þennan virkjunarkost, þar á meðal frá Orkusölunni eða þeim aðila sem er með Hólmsárvirkjun við Atley, en samt sem áður var ekki tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem sett voru fram og það harma ég. Það hefur líka verið viðurkennt að mannleg mistök áttu sér stað.
Virðulegi forseti. Eins og ég segi get ég fallist á laxarökin við Urriðafoss sem komu mjög seint fram, m.a. frá Orra Vigfússyni. Ef við tökum tillit til þeirra, eins og ráðherrarnir gerðu, hefði mér fundist eðlilegt að taka líka tillit til þessara raka sem ég hef hér gert að umtalsefni. Ég skil ekki hvers vegna það var ekki gert. Það er það sem ég gagnrýni og þess vegna segi ég að þessi rammaáætlun er þar með komin með allt of pólitískt yfirbragð. Hér er ekki þeirrar sanngirni gætt að taka tillit til allra þeirra þátta sem komu fram við vinnu þingmálsins.
Hér er rammaáætlun komin til lokaafgreiðslu á hinu háa Alþingi, æðstu lýðræðisstofnun landsins. Ég mat það alltaf þannig að mér bæri að taka tillit til þeirra raka sem kæmu fram og athuga hvort ég hefði ástæðu til að skipta um skoðun. Ég hef myndað mér þá skoðun í öllu þessu ferli. Ég beitti mér fyrir því að atvinnuveganefnd fór í skoðunarferð um Suðurlandið. Við fórum á nokkra virkjunarstaði sem sérfræðingar sýndu okkur hvernig kæmu út. Þar skoðaði ég Urriðafoss og hlustaði á rökin.
Við fórum í Skaftárhrepp og áttum þar mjög góðan fund með sveitarstjórn Skaftárhrepps og andstæðingum virkjunarinnar þar og ég get sagt, virðulegi forseti, að ég skipti um skoðun í þeirri ferð. Mér er engin launung á því.
Ég get líka tekið undir það sem kemur fram í nefndaráliti og fyrirvörum nokkurra aðila, að í þessari vinnu ráðherranna tveggja þar sem horfið var frá tillögu verkefnisstjórnarinnar og ákveðið að búa til nýja tillögu sé gengið of langt í nýtingarflokki á svæði á Reykjanesskaga. Ég get nefnt Sveifluháls og Eldvörpin. Ég hlusta mjög á það sem Ómar Ragnarsson hefur sagt um Eldvörp. Ég verð hins vegar að viðurkenna að ég hef ekki farið um þetta svæði til að skoða það með eigin augum. (Gripið fram í.) En ég les umsagnir og hlusta á rök. Þess vegna set ég fyrirvara, ég tel að það sé gengið of langt í að setja hagkvæmar vatnsaflsvirkjanir eins og tvær efri virkjanirnar í Þjórsá í bið og á móti gengið of langt í að taka jarðhitasvæði á Reykjanesi í nýtingarflokk.
Hvers vegna var það gert? Ég sé ekki rökin, ég get ekki lesið þau hér. Hér eru einhver rök sem ég get ekki lesið. Ég get ekki fundið út úr umsögnum eða gestakomum til nefndanna og ég sé ekki almennilega hvernig sú ákvörðun hefur verið tekin. Þess vegna set ég þetta hérna fram. Og þess vegna tel ég að okkur sé að mistakast.
Nokkrir gestir sögðu að með þessum aðgerðum væri því miður verið að gera þetta að rammaáætlun viðkomandi ríkisstjórnar. Ég óttast það, virðulegi forseti, að væntanlegar ríkisstjórnir muni vitna í þetta inngrip þegar þær fara að breyta rammaáætlun og að hin faglegu sjónarmið verði ekki lengur látin ráða. Þar með hefjast aftur miklar deilur um vernd og nýtingu orkusvæða, hvað skal vernda, hvað á að nýta með því að vernda það og hvað við ætlum að nýta til að búa til nauðsynlega orku. Ég tek aftur sem dæmi Hólmsárvirkjun við Atley sem er ekki stór virkjun en er hugsuð inn á hinn almenna markað fyrir Orkusöluna, fyrir Rarik, til að selja almennum neytendum. Hún getur búið til orkuna sjálf og þarf ekki að kaupa hana af Landsvirkjun.
Þá upphefst það sem ég er svo hrifinn af en vantar á Íslandi, almennileg samkeppni í orkusölu á Íslandi.
Ég sat í iðnaðarnefnd árið 2003 þegar raforkutilskipunin var innleidd og tók þátt í þeirri vinnu. Gulrótin sem hengd var fyrir framan okkur var samkeppni á orkumarkaði. Hver er samkeppnin í dag fyrir almenna neytendur? Hún er þannig, aðeins ýkt, að ef ég byði út orkukaup mín fengi ég sennilega hagstæðasta tilboðið frá Orkubúi Vestfjarða. Ávinningur minn sem neytanda hyrfi hins vegar við það að fá 12 reikninga til viðbótar á hverju ári, einn reikning í mánuði, vegna kostnaðarins við frímerkið á umslagið, þ.e. 120 kr. ef það er í A-pósti, sem náttúrlega allir eiga nota, A-póst. A er fallegur stafur. Minn ávinningur hyrfi við það, það er nú öll samkeppnin.
Þess vegna fell ég fyrir rökum orkusölunnar Rariks fyrir Hólmsárvirkjun við Atley. Eins og ég hef gert að umtalsefni voru rök verkefnisstjórnarinnar ekki tekin til umfjöllunar vegna mannlegra mistaka. Á því byggist þessi röðun. Ég tel þetta miður og ítreka það sem ég sagði áðan, ég óttast að hér sé verið að ganga í fleiri jarðhitakosti á Reykjanesi en við hefðum annars gert. Með öðrum orðum er ég þannig þenkjandi að við hefðum frekar átt að taka efri virkjanirnar tvær í Þjórsá og setja þær í nýtingarflokk, vinna það bara eins og þarf, þegar orkuna þarf, þegar einhverjir vilja kaupa hana, sama hvort þeir vilja kaupa hana til atvinnuuppbyggingar eða almenningur í landinu. Það verður ekki lengur virkjað bara til að virkja og eiga orkuna einhvers staðar á lager. Það er komið nóg af því og það var ekki góð fjársýsla. Það er heldur ekki gott, virðulegi forseti, að bíða það lengi í því sem ég hef hér gert að umtalsefni að við séum heldur ekki tilbúin þegar almennir neytendur eða atvinnusköpun þarf á því að halda.
Þetta er það sem ég vil segja á þeim 20 mínútum sem ég hef til ráðstöfunar um þetta mikla og góða plagg sem ég batt miklar vonir við að við værum að vinna og að flestir alþingismenn, helst allir 63, gætu unnið í sátt og samlyndi og sem stærsti meiri hluti væri myndaður um eins og okkur tókst að gera (Forseti hringir.) í iðnaðarnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd — ég horfi á hv. þm. Mörð Árnason — á sínum tíma, þ.e. að búa til lög um rammaáætlun sem var samþykkt (Forseti hringir.) samhljóða á Alþingi.