141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[15:55]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef svo sem ekki miklu við það að bæta hér í seinna andsvari við hv. þm. Mörð Árnason. En hinn faglegi ferill, já, hann er faglegur og það var farið í gegnum hann eins og ég gerði hér. Verkefnisstjórnin vann mikið og gott starf, erfitt, skilaði þessum gögnum. Síðan fór þetta í umhverfismat áætlana. Það komu fjölmargar athugasemdir, það var tekið tillit til sumra en ekki allra.

Það var ekki tekið tillit til þeirra gagna sem ég hef hér gert að umtalsefni. Hvers vegna var það ekki gert? Þá má spyrja sig að því, ef enginn má taka hina faglegu ákvörðun, eins og mér skilst að hv. þingmaður tali um, nema verkefnisstjórnin. Við megum ekki gera það alþingismenn, þar sem okkur er ætlað að taka hina endanlegu ákvörðun.

Ég er þeirrar skoðunar að við alþingismenn hefðum getað farið í gegnum það, séu fagleg rök fyrir, og þau eru, gagnvart Hólmsárvirkjun við Atley.