141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[16:07]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þá skulum við vera sammála um að vera ósammála um ágæti þessarar tilfærslu.

Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi hugsað sér að koma fram með einhverjar breytingartillögur við þingsályktunartillöguna sem hér liggur frammi, vegna þess að hv. þingmaður er ekki alls kostar sáttur við þá ályktun, eftir því sem mér heyrðist. Og þá í annan stað hvort og hvernig honum lítist á þær tillögur sem við sjálfstæðismenn höfum lagt fram til þess að reyna að leiða aftur sátt inn í þetta mál. Vegna þess að ég og hv. þingmaður erum algjörlega sammála um að mjög miður er að sjá að þetta mál, sem við ætluðum að leiða til lykta hér í sátt, er komið í þann farveg sem við horfum á hér í dag.