141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[17:15]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þetta. Ég hafði tekið eftir þessu en munurinn er sá að varðandi endurmatið á ónýttum kostum í orkunýtingarflokki er verið að mælast til að það verði mælt fyrir þeim í lögum, en hinum megin er verið að tala um að verkefnisstjórnin skoði þá eftir sinni eigin hentisemi. Ég skildi þetta að minnsta kosti þannig, en hv. þingmaður leiðréttir mig ef það er rangur skilningur.

Síðan ætla ég ekkert að bæta við fleiri spurningum en leyfa hv. þingmanni að nýta þennan takmarkaða tíma, eina mínútu, til að svara varðandi „buffer zone“.