141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[17:49]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við skulum ræða þetta svona almennt, eins og við höfum verið að gera, vegna þess að ég held að þessi umræða verðskuldi það alveg. Ég held að við hv. þingmaður séum alveg sammála um að auðvitað þurfum við að gera þetta í sem mestri og bestri sátt við náttúruna. Ég veit að við hv. þingmaður erum bæði áhugafólk um útivist, stundum það, og ég held að upplifun okkar af náttúrunni sé álíka að þessu leytinu.

Við þurfum þá að velta því fyrir okkur hvernig við getum nýtt þessa orku til atvinnusköpunar því að það liggur fyrir að við erum ekki að gera það vegna orkunýtingarþarfar okkar sem íbúa landsins. Við erum að gera þetta vegna þess að við trúum því að við getum búið til aukin verðmæti til hagsbóta fyrir þjóðina, fleiri störf og þar fram eftir götunum. Við þurfum þá að stíga varlega til jarðar, það er alveg hárrétt.

Þessari tillögu var ætlað að búa til þetta jafnvægi milli annars vegar nýtingarinnar og síðan verndarinnar. Ég tel að í meginatriðum hafi býsna vel tekist til. Og á hvaða forsendum eigum við þá að virkja? Við eigum að virkja á þeim forsendum að við göngum varlega fram gagnvart náttúrunni, og það getum við augljóslega gert, eins og mörg dæmi sanna, á sviði vatnsaflsvirkjunar. Þess vegna vekur það — (MÁ: Kárahnjúkar eru dæmi um það.) Kárahnjúkar eru ágætt dæmi um það, hv. þingmaður, það er alveg rétt.

Við höfum mörg dæmi um að hægt sé að nýta vatnsaflið með skynsamlegum hætti í góðri sátt við náttúruna. Mér finnst því skjóta skökku við að það skuli hafa verið hin pólitíska niðurstaða ríkisstjórnarflokkanna að leggja minni áherslu á vatnsaflsvirkjanirnar en verkefnisstjórnin lagði upp með en setja meira hlutfallslegt vægi á háhitasvæðin sem hv. þingmaður og fleiri þingmenn hafa verið að segja að séu lítt rannsökuð aðferð, þurfi mikillar varúðar við, þurfi að skoða miklu betur, þurfi að finna nýjar lausnir sem ekki séu til staðar. Þá virðast skilaboðin vera svolítið óljós. Annars vegar er vatnsaflsvirkjunum hent út og háhitasvæðin eru í nýtingarflokki en þau má greinilega ekki virkja.