141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[18:40]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm Mörður Árnason hefur því miður þann leiða ávana að túlka það sem menn segja í þessum ræðustól út um víðan völl. Er það mikil list að geta það. Hv. þingmaður veit vel að það kom aldrei fram í orðum mínum að ég væri ósammála nefndaráliti 1. minni hluta. Ég sagði hins vegar að ég væri ósammála því sem komið hefði fram og lagt hefði verið til að jökulárnar ættu ekki að vera í nýtingarflokki. Þar af leiðandi er ég ósammála tillögu verkefnisstjórnarinnar líka, en það þýðir ekki að ég styðji ekki álit minni hlutans.

Hv. þingmaður orðaði það hins vegar alveg ágætlega sem við hugsum kannski mörg þegar hann talaði um að breyta ætti málinu eða ræða það í bakherbergjum. Það var vitanlega rætt í bakherbergjum ríkisstjórnarflokkanna. Ég hef ekki sagt að það ætti að ræða annars staðar. En hv. þingmaður orðaði það svona, beint frá hjartanu. Það voru bakherbergin hjá ríkisstjórnarflokkunum sem réðu því að þessir sex kostir voru færðir. Menn eiga ekki að hafa pólitísk afskipti af málinu, hvort kostirnir séu einn, sex (Forseti hringir.) eða fimmtíu, þegar við gerum þetta í fyrsta sinn, þó svo að lögin heimili það.