vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Er ráðlegt að vísa málinu aftur til ríkisstjórnarinnar? Það kann að vera að það sé óráðlegt, en við leggjum það að sjálfsögðu til til þess að reyna að koma einhverju viti í málið. Ekki er hægt að fara með málið í gegnum þingið eins og það lítur út núna. Að okkar mati og hv. flutningsmanns er það ef til vill skilvirkasta leiðin til þess að breyta málinu. Þar sem ríkisstjórnin ákvað að breyta flokkuninni, þ.e. að færa til þessa sex kosti, hlýtur hún að geta fært þá til baka eða komist að niðurstöðu sem fleiri gætu sætt sig við.
Varðandi jökulárnar í Skagafirði minnir mig að niðurstaðan hafi verið sú hjá þeim sem fjölluðu um málið, verkefnisstjórninni og öðrum, að það skorti á rannsóknir út af fiskgengd eða einhverju slíku. Menn höfðu líka áhyggjur af framburði jökulvatnsins þar sem gríðarlegt magn af sandi og aur fer út Skagafjörðinn allan saman.
Ég bendi hins vegar á að það er mjög langsótt að fara þá leið þar sem búið var að rannsaka það allt meira og minna vegna Villinganesvirkjunar. Það sem út af stóð þar, ef ég man rétt, var að tryggja þyrfti gengd seiða upp fyrir stífluna og áfram inn á hálendið. Einhverjar hugmyndir voru uppi um hvernig það mætti gera með sérstökum fiskvegi einhverju slíku.
Ákveðinn hópur í heimabyggð hefur verið á móti þessum áformum alla tíð. Nú er staðan hins vegar sú að þetta samfélag eins og mörg önnur þarf sárlega á því að halda að fjölga atvinnutækifærum. Nú líta margir þannig á að þessi kostur sé nærtækastur í því efni, þ.e. að fara í (Forseti hringir.) þessa virkjun.