141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[18:53]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta eru auðvitað grundvallarspurningarnar. Hvers vegna ætlum við að virkja? Eða eigum við yfirhöfuð að virkja? Það er eiginlega sú spurning sem vakir svolítið yfir þessari umræðu af því að þegar við rýnum í þau sjónarmið sem koma til dæmis fram í meirihlutaályktunum er annars vegar verið að leggja áherslu á að möguleikar í nýtingarflokknum séu á háhitasvæðunum en síðan er það meira og minna slegið út af borðinu með alls konar varnöglum sem eru settir fram og gera það að verkum að það er nánast útilokað að hugsa sér að virkjað verði á þessum svæðum, sem þó eru tilgreind í nýtingarflokknum, á næstu árum.

Það þurfa að fara fram viðurhlutamiklar rannsóknir. Hér eru reifaðar miklar athugasemdir, í raun og veru við virkjunarhugmyndir á háhitasvæðum í sjálfu sér og áður en þeim spurningum verður svarað þurfa að liggja fyrir upplýsingar sem eru greinilega ekki til staðar í dag. Við erum í raun og veru að fást við þá grundvallarspurningu hvort við ætlum yfirhöfuð að nýta orkuauðlindir okkar til verðmætasköpunar og atvinnusköpunar í landinu. Eins og ég sagði áðan erum við auðvitað í þeirri eftirsóknarverðu og öfundsverðu stöðu að hafa nægilega orku til að drífa eitt samfélag áfram, og miklu meira en það, en það er líka staðan hjá ýmsum öðrum þjóðum sem til dæmis búa við jarðefnaeldsneyti. Ég nefndi Norðmenn sem dæmi um það. Þeir nota það ekki bara (Forseti hringir.) til að fara frá einum stað til annars á bílunum sínum eða til að sigla skipunum sínum. Þeir nota það til að búa til gjaldeyristekjur í stórum stíl. Alveg eins og við höfum notað okkar (Forseti hringir.) orkukost í því formi að selja hann til fyrirtækja sem búa til útflutningstekjur og þannig verður orkan í raun og veru gjaldeyrisskapandi.

(Forseti (SIJ): Forseti vill vekja athygli á því að klukkan í borði er biluð en mælir hér á forsetastóli þann tíma sem þessi eina mínúta tekur.)