141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[19:51]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er eitt af þeim andartökum í hinum dásamlega sal okkar á Alþingi Íslendinga þegar maður hlustar á ræðu og hugsar með sér: Þessari ræðu má ekki ljúka strax. Ég hvet því hv. þingmann til þess að halda áfram yfirgripsmiklar ræður með svona skemmtilegri nálgun sem dregur fram hversu mikilvægt það er fyrir okkur að halda áfram því verkefni að virkja og af hverju við virkjum.

Hv. þingmaður gerði sérstaklega samanburð við vindmyllurnar, sem ég ætlaði ekki að fara út í hér og ætla mér ekki í fyrirspurnum mínum. Ég þakka hv. þingmanni fyrir frábæra ræðu og hlakka til að heyra fleiri ræður í þá veru sem tengjast orkumálum, framtíðaruppbyggingu okkar Íslendinga, af því að þau snerta efnahagslegt sem og félagslegt öryggi okkar allra.

Hv. þingmaður minntist á Írafoss- og Ljósafossstöð og ég er sammála því að ef þeir framsýnu menn sem tóku þá ákvörðun að fara í virkjanir hefðu ekki gert það væru kjör okkar Íslendinga allra lakari. En mér finnst þær líka vera ákveðinn vitnisburður um hversu öflug við erum í uppbyggingu þekkingar. Segja má að Ljósafossstöð og Írafossstöð séu byrjunin á því sem við erum að gera í dag, þ.e. að selja orkuþekkingu okkar. Við gerum það víða um heim, hvort sem það er í Kína, á Indlandi eða annars staðar. Við förum út fyrir landsteinana og byggjum þar á áratugareynslu sem við Íslendingar höfum á sviði tækniþróunar, verkfræðiuppbyggingar og menntunar o.s.frv.

Ég sé að tími minn er að verða búinn í fyrra andsvari mínu. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að þróun vísindaþekkingar og rannsóknarþekkingar okkar Íslendinga verði, þar sem við erum forustuafl á því sviði í heiminum, ef það pottlok (Forseti hringir.) verður sett á virkjunarkosti okkar í vatnsaflsvirkjunum sem vinstri stjórnin beitir sér fyrir að setja núna?