141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[19:53]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni vegna þess að þar hafa Íslendingar náð að skapa sér ákveðið forskot. Við erum með þekkingu á heimsmælikvarða, held ég að mér sé óhætt að segja, þegar kemur að vatnaflsvirkjunum og jarðvarmavirkjunum.

Ég er ekkert á móti því að Landsvirkjun eða önnur innlend fyrirtæki prófi sig áfram með annars konar orkugjafa og haldi áfram að þróa framleiðslu sína. En ef við lítum á vindmyllurnar er alveg ljóst að aðrar þjóðir standa mun framar en Íslendingar í þróun þeirrar tækni, til dæmis Danir og Þjóðverjar. Það væri óráð fyrir okkur að ætla að byrja frá grunni í samkeppni með vindmyllur, svo við notum það dæmi áfram, í stað þess að viðhalda því forskoti sem við höfum hvað varðar vatnsaflsvirkjanir eða jarðvarmavirkjanir.

Það er ekki bara spurning um eigin hagsmuni okkar Íslendinga að geta selt þá þekkingu, nýtt hana bæði hér heima og erlendis, það er auðvitað líka spurning um að boða fagnaðarerindið, leyfi ég mér að segja, að kynna aðrar þjóðir fyrir þessum kostum. Þær þjóðir eru allar mjög þakklátar sem notið hafa ráðgjafar íslenskra sérfræðinga í orkumálum fyrir það að geta nýtt virkjunarkosti sína eins og Íslendingar hafa gert. Það er því mjög erfitt að skilja þá neikvæðni sem oft skýtur upp kollinum í umræðum hér í þinginu og stundum í umræðum í íslenskum fjölmiðlum varðandi hina umhverfisvænu orkuframleiðslu okkar Íslendinga vegna þess að útlendingar líta almennt á hana sem eitt af því sem gerir Ísland svo gott land, sem gerir Ísland að fyrirmyndarlandi.