vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir með þingmanninum, auðvitað eru hreinleiki og verndun mjög mikilvæg í íslensku samfélagi, fyrir íslenska náttúru og fyrir íslenska ímynd. Ég tek heils hugar undir það, en eru vatnsaflsvirkjanir okkar að skemma þessa ímynd í dag? Eða höfum við náð þessum hreinleika og þessari ímynd sem hv. þingmaður vitnar til einmitt með því hvað við höfum gengið skynsamlega um nýtingu á orkuauðlindum okkar? Er það einmitt þess vegna?
Er þingmaðurinn að meina það í raun og veru að það eigi ekki að virkja meira? Ég fór yfir það með hv. þingmanni áðan að þeir vísindamenn okkar sem standa langfremst á þessu sviði og standa framarlega á heimsmælikvarða hafa sagt okkur að með athugunum og rannsóknum á afkomu laxastofnsins í Þjórsá verður ekki gengið lengra í rannsóknum. Við getum endalaust teygt lopann og (Forseti hringir.) og sagt: Ja, það á að láta náttúruna njóta vafans en ef við (Forseti hringir.) förum þá leið verður ekki virkjað meira (Forseti hringir.) á Íslandi. Það er alveg ljóst. Er það stefna Samfylkingarinnar, (Forseti hringir.) er það stefna hv. þingmanns, að hér verði ekki virkjað meira? (Forseti hringir.) Við skulum fá svör við því vegna þess að í rannsóknum á laxastofni í neðri hluta Þjórsár verður ekki gengið lengra öðruvísi (Forseti hringir.) en að byggja virkjun og sjá hvernig þær tilraunir sem hafa verið gerðar koma út.
(Forseti (ÞBack): Forseti ítrekar enn og aftur að seinna andsvar og seinna svar er ein mínúta og biður hv. þingmenn að virða það þegar tímamörkin eru svo knöpp.)