141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[21:03]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Að ná sátt? Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður trúi því virkilega að í þessu felist meiri sátt en í tillögu okkar sjálfstæðismanna um að verkefnisstjórninni verði falið að raða niður virkjunarkostunum. Ég tel hins vegar að umtöluð sátt snúi fyrst og fremst að því að ná sátt við ríkisstjórnarborðið og við þá ráðherra sem ekki voru sammála þessum áætlunum. Hv. þm. Kristjáni L. Möller var einfaldlega skóflað út af ríkisstjórnarfundum. Þannig eru vinnubrögðin hjá ríkisstjórninni.

Spurningar mínar eru tvenns konar. Hv. þingmanni varð tíðrætt um að ná sátt og að tala af virðingu um náttúruna, láta náttúruna njóta vafans. Gott og vel. Ég spyr hv. þingmann hvort hann telji að jarðhitavirkjanir, sem tillaga er um að settar verði í virkjunarflokk, séu hagfelldari og betri fyrir náttúruna, að með því að fara í virkjun á því sviði sé verið að láta náttúruna njóta vafans meðan vatnsaflsvirkjanir, sem allir vita að menga minna, bíða. Jarðhitavirkjanir vel að merkja — arðsemin, talandi um hagvöxt fram í tímann, algjörlega órætt hver arðsemin af jarðhitavirkjunum er til lengri tíma. Umhverfisáhrifin enn þá algjörlega óljós, svo að ekki sé talað um áhættuna. Skýtur ekki skökku við að fara í jarðhitavirkjanir af þeim krafti sem gert er í tillögunni en taka út af borðinu, alla vega um tíma, vatnsaflsvirkjanir sem búið er að rannsaka í þaula? Þetta var fyrri spurningin.

Seinni spurningin snýr að tillögu okkar sjálfstæðismanna. Talandi um að stíga varlega til jarðar, hefði ekki verið betra, og er það ekki best, upp á það líka að skuldbinda alla flokka fram yfir kosningar í þessu máli, þar með talið Sjálfstæðisflokkinn, þar með talið Framsóknarflokkinn, að fela verkefnisstjórninni að raða niður virkjunarkostunum? Er það ekki varlegasta skrefið í þágu náttúrunnar og í þágu þjóðfélagslegrar og stjórnmálalegrar sáttar?