141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[21:46]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir innlegg hans í þessa umræðu. Við hv. þingmaður eigum báðir sæti í hv. atvinnuveganefnd og í haust fórum við í ferð til að kynna okkur þá kosti sem í boði voru í virkjunarmálum á Suðurlandi. Við kynntum okkur neðri hluta Þjórsár og svæðin í Skaftárhreppi vegna þess að við vorum, herra forseti, að undirbúa okkur undir það að atvinnuveganefnd fengi málið til umfjöllunar eins og ráð var fyrir gert síðastliðið vor. Vegna pólitískra hrossakaupa ríkisstjórnarinnar var gerð sú breyting á að málið var flutt til umhverfis- og samgöngunefndar, eins og menn þekkja. Við kynntum okkur meðal annars hugmyndir um virkjun í neðri hluta Þjórsár, þessar þrjár virkjanir; Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjun.

Ég verð að segja að þrátt fyrir að ég eigi erfitt með að kaupa öll þau rök sem Orri Vigfússon hefur komið fram með um laxastofnana hefur mér þótt skynsamlegt að setja Urriðafossvirkjun í bið, einfaldlega vegna þess að uppbyggingin verður væntanlega ekki svo hröð. Ég sé hins vegar engin rök fyrir því að setja hinar tvær virkjanirnar í bið og tel að þær hefðu átt að fara í nýtingarflokk, ekki síst í því ljósi að Landsvirkjun, sem er virkjunaraðilinn á þessu svæði, hyggst setja upp sambærilega seiðafleytu í Hvammsvirkjun og átti að setja í Urriðafossvirkjun. Þannig mundi skapast kannski tíu ára reynsla áður en við tækjum ákvörðun um Urriðafoss.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvaða sýn hann hefur á Urriðafossvirkjun, hvort hann (Forseti hringir.) telji að sá kostur eigi að vera í nýtingarflokki ásamt hinum tveimur, eða hvort hv. þingmaður telji eins og ég að (Forseti hringir.) það sé skynsamlegt að setja hann í biðflokk.