141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[22:11]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmönnum Samfylkingarinnar, Magnúsi Orra Schram og Árna Páli Árnasyni, var tíðrætt áðan um að hið nýja atvinnulíf, náttúran, mundi skapa mikil verðmæti og það ætti að gera Ísland að fyrirmyndarlandi í náttúruvernd og að umhverfismál yrðu mikilvægust í atvinnulífi framtíðar. Það var sagt í samhengi við rammaáætlun.

Mig langar að spyrja hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson að því hvort hann telji að sú niðurröðun, sem við sjáum síðan í rammaáætlun þar sem verið er að fara í jarðvarmavirkjanir á Reykjanesi, Stóru-Sandvík, Eldvörpum, Sandfelli, Sveifluhálsi, Meitlinum, Gráhnúkum, Hverahlíð og Bjarnarflagi, geti talist í samræmi við slíkan málflutning. Er hv. þingmaður sammála mér í því að fyrrnefndir hv. þingmenn séu skinheilagir í sínum málflutningi þar sem settir eru til hliðar augljósir virkjunarkostir sem í senn eru mjög hagkvæmir efnahagslega (Forseti hringir.) og umhverfislega, þ.e. virkjunarkostir í neðri hluta Þjórsár?