141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[22:20]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Því miður held ég að það sé rétt niðurstaða sem hv. þingmaður hefur dregið af þingsályktunartillögunni annars vegar og síðan af þeim orðræðum meiri hluta manna sem hafa komið upp í dag. Reyndar hafa verið vísbendingar um það í langan tíma að núverandi ríkisstjórn, og sá meiri hluti sem hér er, hafi ætlað sér að bregða fæti fyrir orkugeirann og koma í veg fyrir að hann gæti vaxið. Mér hefur alla tíð þótt það sérkennilegt að menn séu ekki tilbúnir að horfa á það að þeir virkjunarkostir sem við höfum eru byggðir á endurnýjanlegum orkugjöfum, ef það er jarðvarmi þurfum við vissulega að fara varlega og varlegar en varðandi vatnsaflið. Þar fara menn í miklar rannsóknir og komast að endanlegri niðurstöðu og síðan er umhverfisrask sem þar verður nokkuð fyrirsjáanlegt og vitað á hvaða stöðum það verður.

Ég verð að segja alveg eins og er að það hefur vakið furðu mína að umhverfissinnar, sem eru sannarlega í stjórnarflokkunum, (Forseti hringir.) skuli ekki sjá ljósið í því að nýta endurnýjanlega orkugjafa til atvinnusköpunar (Forseti hringir.) og verðmætasköpunar í þessu landi.