vernd og orkunýting landsvæða.
Forseti. Komið hefur skýrt fram á fundum um efnið að fulltrúar í verkefnisstjórn bjuggust við því frá upphafi að biðflokkur yrði mun stærri en raun ber vitni. Komið hefur fram að formenn faghópa sem og fulltrúar í verkefnisstjórn líti svo á að mjög veigamiklar upplýsingar skorti á veigamiklum sviðum. Ég held að óhætt sé að fullyrða að nánast allir séu sammála um það að t.d. faghópur 3 þurfi gríðarlega mikillar uppbyggingar við.
Telur hv. þm Gunnar Bragi Sveinsson þá ekki rétt að setja fleiri háhitavirkjanir í bið og að það sé samkvæmt gildandi lögum þar sem skýrt kemur fram að vanti upplýsingar beri að setja svæði í bið?