141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[23:29]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Auðvitað höfum við margoft rætt um vanda Skaftárhrepps í þessum stól. Er þar helst að minnast hv. þm. Marðar Árnasonar sem hefur mikinn áhuga á málefnum Skaftárhrepps og það væri gaman ef hv. þingmaður sæi sér fært að fara aðeins yfir þá kosti sem tengjast því sveitarfélagi sérstaklega í þessari tillögu frá stjórnarmeirihlutanum.

Þannig er mál með vexti að fólksfækkun hefur verið gríðarleg í Skaftárhreppi á undanförnum árum og það er algjörlega ljóst að stjórnvöld þurfa að koma þessu svæði til aðstoðar. Í fjárlögunum er gert ráð fyrir framlagi til byggingar þekkingarseturs á Klaustri og er það svo sem viðleitni til að gera eitthvað. En ef við ætlum okkur að byggja þarna upp sterkt samfélag til framtíðar og sporna gegn þeirri miklu fólksfækkun sem á sér stað þurfa að koma til aðstæður sem gera það að verkum að atvinnulífið geti blómstrað. Það er það sem þarf að gera.

Ferðaþjónustan er vaxandi en ferðaþjónustan er því miður ekki enn orðin heilsársstóriðja á þessum slóðum. Ef við fjölgum eggjunum í körfunni og fjölgum þeim tækifærum sem íbúarnir sjálfir geta gripið og fylgt eftir með sínum hugmyndum um fyrirtækjarekstur erum við að ná einhverjum árangri. Þá sköpum við þær aðstæður að samfélagið geti vaxið að nýju og það er það sem við þurfum að gera varðandi byggðamál í Skaftárhreppi.

Varðandi rammaáætlunina verða þær virkjanir sem eru hugsaðar þarna austur frá að komast í gegnum þá aðferðafræði sem verkefnisstjórnin leggur til. (Forseti hringir.) Ég hlýt að þurfa að standa við það og ég stend við það gagnvart þeim virkjunarkostum.