141. löggjafarþing — 50. fundur,  11. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[23:56]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Auðvitað þykir mér einfaldlega dapurlegt að horfa á að öll sú mikla vinna er í rauninni tekin og henni fórnað fyrir það að setja sín pólitísku fingraför á málið. Mér þykir það mjög miður og ég veit að ég er ekki ein um að vera döpur yfir þeirri staðreynd.

Fjölmargir þingmenn hafa stormað upp í ræðustólinn á undanförnum árum til að tala um að nú ætli menn sér að viðhafa önnur vinnubrögð en tíðkast hafa í gegnum aldirnar. Hluti af því var að leggja til að þetta mál færi í þennan farveg á sínum tíma. Það væri í rauninni mikil áhersla lögð á það árið 2007 þegar sú verkefnisstjórn sem ég starfaði í tók til starfa og þess vegna skýtur afskaplega skökku við að þegar við erum komin á lokametrana skuli menn fara út af sporinu. Það er mjög dapurlegt vegna allrar þeirrar vinnu og þess kostnaðar sem við höfum lagt í það mikla mál.