vernd og orkunýting landsvæða.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að mér finnst að stjórnarliðar séu komnir í mótsögn við sjálfa sig. Það hefur ríkt þverpólitískur stuðningur um þetta verkefni en nú virðast menn ætla að skipta um hest í miðri á. Það er heilmikil stefnubreyting sem felst í því að færa þessa sex virkjunarkosti úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Það er eðlilegt að menn spyrji sig að því hvað veldur og klóri sér í hausnum yfir því. Það gera aðilar vinnumarkaðarins, Alþýðusamband Ísland, Samtök atvinnulífsins. Það erum ekki bara við í stjórnarandstöðunni sem furðum okkur á þessum vinnubrögðum. Mér finnst dálítið merkilegt að hlusta á hvernig þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa komið inn í þessa umræðu. Við þingmenn þessara beggja flokka höfum talað fyrir því að menn fari að tillögum okkar helstu sérfræðinga í þessum efnum og höfum beðið um frið og sátt um málaflokkinn. Á sama tíma tromma hér upp Vinstri grænir og samfylkingarmenn með stríðshanskann á lofti og þetta mál skal fara í gegn með góðu eða illu, væntanlega helst með illu vegna þess að þegar kemur að undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar hefur ríkisstjórnin gengið þannig fram að hún hefur stórskaðað viðkomandi málaflokka.
Ég tel að ríkisstjórnin hafi á óskiljanlegan hátt horfið frá þeirri þverpólitísku sátt sem var um rammaáætlun. Það væri fróðlegt að heyra frá hv. þingmanni hvort hann hefði getað sætt sig við þá niðurstöðu sem sérfræðingahópurinn lagði til. Við hefðum þá haft þessa sex kosti í nýtingarflokknum, þó ekki væri nema til þess að það væri skýr framtíðarsýn um þennan málaflokk og við gætum farið í raunverulegar fjárfestingar og framkvæmdir í þessum iðnaði.