141. löggjafarþing — 50. fundur,  12. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[00:10]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svar mitt er já. Ég hefði að sjálfsögðu viljað fallast á þá niðurstöðu vegna þess að í henni voru mismunandi sjónarmið virt. Ég hefði kannski ekki verið að öllu leyti fyrir fram ánægðastur með þá niðurstöðu, en ég hefði virt hana.

Það sem er svo alvarlegt er að hér er í fyrsta lagi ýtt burtu vatnsaflsvirkjunum sem eru sannarlega hagkvæmastar, virkjunum sem hægt hefði verið að fara í nánast samstundis og hefðu þegar í stað skapað verðmæti og atvinnu fyrir þjóðfélagið á tímum sem við þurfum virkilega á því að halda.

Í annan stað er hitt að þegar búið er að ýta út þessum kostum standa eftir háhitasvæðin, en um þá möguleika er hins vegar þannig talað í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar að í raun og veru er þeim ýtt — kannski ekki alveg í burtu en langt inn í framtíðina og inn í mikla óvissu. Þar er þessari virkjunaraðferð fundið allt til foráttu, hún valdi mengun, spjöllum á landi, skapi alls konar vandamál, jafnvel jarðskjálfta og (Forseti hringir.) ég veit ekki hvað og hvað. Í raun er verið að segja: Virkjum ekki. Punktur. (VigH: Punktur is.)