vernd og orkunýting landsvæða.
Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta mál er komið einhvern veginn út af sporinu vegna þess að á því hefur verið gerð breyting á lokastigi. Hún leiðir til þess að þeir sáttamöguleikar sem virtust vera fyrir hendi þegar verkefnisstjórn og svokallaður formannahópur skilaði af sér á síðasta ári virðast vera horfnir.
Ég velti fyrir mér afstöðu hv. þingmanns til þess hvað beri að gera til að reyna að koma málinu aftur á hið rétta spor. Hvað við getum gert til að reyna að endurvekja breiðari sátt um niðurstöðu í þessum efnum. Sá möguleiki er auðvitað fyrir hendi að málið endi svo að sá meiri hluti sem nú um stundir er hér á þingi knýi sína niðurstöðu í gegn með þeim hætti sem gert var af hálfu meiri hlutans í umhverfis- og samgöngunefnd. Hann leggur upp sem sína aðaltillögu að tillagan verði samþykkt óbreytt, þó reyndar helmingur þeirra sem undirritar þá tillögu sé með sérbókanir og sérskoðanir á ýmsum þáttum, en látum það nú vera. Meginniðurstaðan er á þann veg að tillagan eigi að verða samþykkt óbreytt. Það er hugsanlegt að niðurstaðan verði sú innan hugsanlega fárra daga, við vitum það ekki. Þá blasir jafnframt við að sú niðurstaða sem þingið kemst að í þessari lotu er dæmd til að verða frekar skammlíf, dæmd til að verða (Forseti hringir.) endurskoðuð af þeim sem taka við eftir næstu kosningar.