vernd og orkunýting landsvæða.
Hæstv. forseti. Ef nýr meiri hluti myndast hér að loknum kosningum held ég að það sé augljóst að það svigrúm sem lögin um rammaáætlun gefa verði nýtt til að breyta þeirri niðurstöðu sem nú liggur fyrir. Ég ætla ekkert að segja nákvæmlega fyrir um hvernig að því verður staðið en það er hins vegar alveg ljóst að rammaáætlun er tiltölulega auðbreytanleg miðað við margt sem menn þurfa að takast á við á hinum pólitíska vettvangi. Þegar valin hefur verið sú leið að ákveða niðurstöðu með pólitísku meirihlutavaldi frekar en með sátt þá hefur það auðvitað afleiðingar, það liggur í augum uppi. Þeir sem kjósa að láta sínar pólitísku áherslur ráða niðurstöðunni eru auðvitað að gefa boltann fyrir áframhaldi sem verður þeim kannski ekki að skapi.