141. löggjafarþing — 50. fundur,  12. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[01:16]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta um.- og samgn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get fallist á og hef gert það í ræðum mínum hér að óvissan um margar af þeim jarðvarmavirkjunum sem eru í nýtingarflokki sé meiri en varðandi vatnsaflsvirkjanirnar sem voru fluttar úr nýtingarflokki niður í biðflokk. Óvissan um hvort þau leyfi fást sem til þarf þegar á reynir vegna þess að eins og við hv. þingmaður vitum felst ekki ákvörðun um nýtingu í því að setja virkjunarkosti í nýtingarflokk. Það eru margar aðrar síur og margir aðrir þröskuldar eftir.

Ég held að óvissan um þá kosti sem hún nefnir, jarðvarmakosti á Reykjanesskaganum, sé meiri en um ýmsa þá vatnsaflskosti sem ákveðið var að færa niður um flokk. Ég held einfaldlega að á síðari stigum, þ.e. í næsta skrefi eftir að rammaáætlun hefur verið ákveðin, sé nálaraugað (Forseti hringir.) sem jarðvarmavirkjanirnar eiga eftir að fara í gegnum miklu þrengra. Kannski sé því ólíklegra (Forseti hringir.) að þær verði allar að veruleika heldur en þær vatnsaflsvirkjanir sem ég hef vísað til fyrr í umræðunni.