141. löggjafarþing — 50. fundur,  12. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[01:18]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég stíg í ræðustól til að veita virðulegum forseta ráð með það að markmiði að greiða fyrir þingstörfum. Reyndar finnst mér mjög undarlegt og ekki sæmilegt að stjórnarmeirihlutinn skuli láta ræða þetta mikilvæga mál eftir klukkan eitt um nótt og sýna því þá lítilsvirðingu sem í því felst, en það er ekki aðalerindið. Erindið er að veita herra forseta ráð um hvernig megi ljúka þessari umræðu hraðar og betur en ella og láta hana skila sem mestum árangri. Það er að láta umræðuna fara fram um miðjan dag eða a.m.k. ekki seint um kvöld eða um nótt, vegna þess að hættan er sú, eins og við höfum séð virðulegur forseti, að þegar menn eru látnir ræða málin langt fram á nætur þá fara þeir að óttast að enginn taki eftir því sem hér er sagt og finnist þeir jafnvel þurfa að endurtaka hlutina daginn eftir.

Þetta eru auðvitað ekki skilvirk vinnubrögð, virðulegur forseti. Það eru reyndar fjölmargir þingmenn hér sem gætu kannski (Forseti hringir.) viljað nota tímann til þess að æfa ræður fyrir morgundaginn og næstu daga, en það (Forseti hringir.) flýtir ekki fyrir þingstörfum.