141. löggjafarþing — 50. fundur,  12. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[01:25]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Mig langar að beina því til hæstv. forseta að upplýsa þingmenn um hversu lengi forseti hyggst halda hér þingfund í nótt. Það er auðvitað rétt sem fram hefur komið að þegar svo stórt mál er rætt þá er að sjálfsögðu betra að gera það á tíma sem stjórnarþingmenn treysta sér til að vera vakandi og taka þátt í umræðunni. Ég þakka þeim hv. þingmönnum sem eru hér í salnum fyrir hönd stjórnarliða, hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur og hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, fyrir að taka hér þátt í umræðunni. En ég mundi halda að það væri umræðunni til góða og fyrir framhald málsins að það tækju fleiri þátt í henni og hugsanlega að menn gætu fylgst betur með. Þar af leiðandi spyr ég hæstv. forseta út í það hversu lengi hann hyggist vera hér í kvöld eða inn í nóttina.

Annað, þá tek ég undir að mjög æskilegt væri að ráðherrar málaflokkanna kæmu hér og væru við umræðuna vegna þess hversu mikið gert er úr málinu og hversu mikilvægt það er talið.