vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Við erum hér og það er komið vel fram yfir miðnætti. Ég held að þær spurningar sem beint er til hæstv. forseta séu mjög eðlilegar og varða m.a. það hversu lengi þessi þingfundur á að standa og síðan hvort hæstv. forseti geti ekki upplýst þingmenn um hvort ráðherrar þeirra málaflokka sem hér eru til umræðu séu ekki væntanlegir hingað í hús og ætli að taka þátt í umræðunni.
Eins og komið hefur fram meta stjórnarliðar það svo að þetta mál sé það mikilvægt að mál sem skiptir máli að klárist fyrir áramót, eins og til að mynda fjárlög, eru sett aftur fyrir þetta mál. Þá hljóta hæstv. ráðherrar þessara málaflokka, sem m.a. hafa forsvar fyrir þeim og telja þetta mál svona mikilvægt, geti þá verið hér í salnum. Ég beini því til hæstv. forseta að þessir ágætu hæstv. ráðherrar þessara málaflokka verði kallaðir hér í hús, tali í þessum umræðum (Forseti hringir.) og taki þátt í þessum umræðum.