141. löggjafarþing — 50. fundur,  12. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[02:19]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég hafði beðið um orðið um fundarstjórn forseta áður en hv. þm. Árni Johnsen komst í ræðustól en kannski var ágætt að ræða mín beið aðeins.

Hér hafa menn komist upp með að fara með fleipur um fjarstadda þingmenn og er það algerlega óforsvaranlegt hvernig umræðan hefur verið síðustu mínúturnar; palladómar um nafngreinda þingmenn, mest um þá sem eru fjarstaddir, kjaftasögur og dylgjur innan úr nefndum. Það er ekki forsvaranlegt.

Ég vil af þessu tilefni árétta að í 5. mgr. 67. gr. þingskapa er kveðið á um framsögumenn nefnda. Það er eins gott að það sé sagt úr því að mata þarf hér allt með teskeið, að hv. þm. Mörður Árnason er framsögumaður málsins, hann er til þess kjörinn af hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Hann er ekki sjálfskipaður í það hlutverk, hann valdi sér það ekki sjálfur. Hann sat við umræðuna í allan dag, (Forseti hringir.) eða þar til á tíunda tímanum í kvöld að hann þurfti að víkja frá vegna annarra erinda. Ég sem varaformaður (Forseti hringir.) umhverfis- og samgöngunefndar og hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður nefndarinnar, erum hér sem fulltrúar nefndarinnar viðstaddar þessa umræðu.