vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar afar góðu ræðu þar sem farið var yfir ferlið í þessu máli.
Nú hefur málið verið í miklum sáttafarvegi í um 13 ár. Sá sáttafarvegur hefur byggst á miklu trausti milli stjórnmálaflokka og raunverulega hafa þeir flokkar sem skipta máli í okkar samfélagi komið að málinu, skipulagi þess og skipun starfshóps, ásamt hagsmunaaðilum og öðrum þeim sem hafa um verndun að segja. Ákveðið var að setja rammaáætlun nr. 2 eins og við köllum hana í lögformlegt ferli og undirbyggja undirstöður hennar með því að setja lög 11. maí 2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun, sem allir þingmenn voru samþykktir og þannig hvíldi hún á lögformlegum grunni. Það er mjög einkennilegt að vinstri stjórnin skyldi hafa komist með fingurna í það langa sáttaferli sem hefur átt sér stað og kollvarpa rammaáætlun sem var heildstæður samhugur um.
Því langar mig til að spyrja þingmanninn: Hugnast henni hrossakaup af því tagi? Var Alþingi blekkt þegar 12 vikna umsagnarákvæðið var sett inn í lögin? Voru þingmenn ekki nógu vel á verði eða treystu þeir vinstri flokkunum of vel í lagasetningunni vegna þess að nú hefur komið á daginn að búið er að flytja virkjunarkosti á milli flokka, úr nýtingu í bið og úr bið í friðlýsingu o.s.frv.? Hver er ástæðan að mati þingmannsins?