vernd og orkunýting landsvæða.
Herra forseti. Hv. þingmaður kom áðan inn á stjórnarskrána og síðan þetta risamál, rammaáætlun. Stjórnarskráin er yfir allt annað hafin, hún er grundvallarplagg okkar Íslendinga. Þessi rammaáætlun hefði getað verið okkar grundvallarplagg varðandi uppbyggingu umhverfisverndarsjónarmiða og um leið nýtingarsjónarmiða, að reyna að gera það í þessari sátt. Það sem mér finnst vont við þau mál er að ríkisstjórnin gerir þau að dægurmáli. Hún gerir bæði stjórnarskrána að einhverju pólitísku dægurmáli og rammaáætlunina, eins og hún hefði getað verið.
Varðandi kosningar hef ég margoft sagt að það hefði mátt boða til kosninga miklu fyrr en ég er hér fram til 27. apríl og mun á meðan gera mitt til að veita þessari vonlausu ríkisstjórn aðhald.