vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni að hagvöxtur væri of lágur og spár um hagvöxt væru allt of lágar. Við þyrftum að vera með hagvöxt í kringum 4,5–5,5% til að geta aukið framleiðni og skapað gjaldeyri, m.a. til að standa undir velferðarkerfinu okkar og geta greitt skuldir. Þingmaðurinn ræddi um að þau störf sem gætu skapast, og vitnaði þar í framkvæmdaskýrslu Landsvirkjunar, væru allt að 11 þúsund og hagvöxturinn gæti komist í 5% eða þau 2–3 viðbótarstig sem vantar frá núverandi stefnu ríkisstjórnarinnar, sem hefur haldið því niðri.
Það er rétt að minnast á að í fyrstu efnahagsspám og stefnu ríkisstjórnarinnar lá alltaf fyrir að hér ætti að vera 3,5% hagvöxtur. Það átti að byggjast á stóriðjuframkvæmdum við Helguvík, orkustarfseminni sem þar þurfti til að tryggja orkuna og síðan uppbygginguna á Helguvík og þeirri innspýting inn í atvinnulífið sem aldrei hefur orðið og enn er beðið eftir.
Ég vitna til McKinsey-skýrslunnar þar sem er verið að bera saman Norðurlöndin og Ísland. Þar er talað um atvinnugeirann sem byggir á náttúruauðlindum, sjávarútveginum, orkunni, að hluta til landbúnaði og að stórum hluta ferðaþjónustu, og að það séu þær atvinnugreinar í landinu sem bera uppi efnahagslífið og standa sig líka mjög vel í alþjóðlegum samanburði. Það er talað um að í orkugeiranum, og reyndar í hinum geiranum líka, þurfi fjárfestingarnar að skila sér víðtækar. (Forseti hringir.) Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að hagvöxturinn geti haldið áfram því það er ekki nóg að virkja, við þurfum líka (Forseti hringir.) að fá fyrirtæki til framleiðni í kjölfarið sem skilar áframhaldandi 5% hagvexti inn í framtíðina?